Upplýsingar um viðburð
- Fimmtudagur | 3. september 2020
- 11:00
- Pilestredet Park 20
- 22360140
Nú förum við aftur af stað með Krílakaffi í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0179 Osló (beint á móti Extra búðinni). Þetta eru notalegar samverustundir þar sem mömmur og pabbar, au pair, afar og ömmur geta hist með litlu ungunum sínum. Það er alltaf heitt á könnunni, og boðið upp á einhverja hressingu.
Svo er líka dásamlegt að spjalla á íslensku um hvað sem er auk þess sem það eru leikföng og teppi fyrir litlu börnin.
Við hlökkum til að eiga margar gæðastundir saman á næstunni en fjölskyldumorgnar verða aðra hverja viku í vetur. Stundum verður opið hús með notalegri samveru og söng og stundum boðið upp á fræðslu eða fyrirlestur. Húsið opnar kl. 11.
Verið hjartanlega velkomin!!
